Auglýsing

*•.° | Fimmtudagur

02. ágúst 2007 klukkan 17:06
 Já.. maður hefur nú ekki verið neitt svakalega duglegur að blogga hérna undanfarið. Ætlaði hinsvegar að láta bara vita að ég er ennþá á lífi og meira til.

Það er svo sem ekkert spes að frétta af mér.. nema það að ég hef verið að vinna eins og bjálæðingur undanfarið.. En það er bara svo sem ágætt.. meiri vinna, meiri peningur, minna úthald í að halda sér vakandi :P hahaha..

Ætlaði nú bara að hafa þetta stutt þar sem ég á eiginlega að vera að pakka.. Ég er nefnilega að fara i smá sumarfrí, loksins.. Ég er að fara til Aðalvíkur með familíunni ;) ohh þetta verður æði..

Hinsvegar ætla ég bara að vona að fólk skemmti sér um versló..
Kem með lengra blogg þegar ég kem til baka úr fríinu minu ;)

- beggan

*•.° | Sunnudagur

01. júlí 2007 klukkan 20:15

Núna hef ég loksins komið mér í það að blogga hérna á þessari síðu minni.. Sumir héldu kannski að ég væri nett dáin.. en svo er ekki.. Því miður fyrir suma kannski.. Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá kellunni undanfarna daga  :P

Annars þá er ég farin til Fuerteventura og komin aftur til baka. Ég er líka búin að fara til Akureyrar á bíladaga og koma aftur heim.. ég er búin að hitta Fuerte-stelpurnar .. sem var mjög gaman :D .. og það er verið að skipuleggja annan hitting á næstunni..;)

Annars þá var BARA gaman í útskriftarferðinni og vil ég þakka öllum fyrir æðislega skemmtilega ferð :D Þetta var hreint út sagt magnað og það líður ekki sá tími sem manni langar að fara aftur og upplifa þessa ferð aftur.. :D - Það er ekki nóg að skemmti mér í þessari ferð.. ég eignaðist líka nýjar vinkonur og kynntist þeim "gömlu" betur :D.. kynntist einnig gömlu bekkjabræðrum mínum "aftur" :D hehe.. Ég elska ykkur öll.. *tár*

Fyrir utan þessa ferð skráði ég mig á hraðlestrarnámskeið.. Er að fara í annan tímann minn á morgun.. og ég er komin tveimur dögum á eftir í heimalærdómi :S Shiii.. Verð hinsvegar að fara að taka mig á ef ég ætla að ná einhverjum árangri :P Því mig langar að geta lesið hratt:D hehe..

Já.. svo er ég líka í bílaleit :P Ég og pabbi erum búin að þræða allar helstu bílasölur í bænum.. Þar sem að mig vantar bíl helst í gær verð ég að hafa hraðar hendur.. Suzuki-inn minn lekur nefnilega olíu og endurskoðunin á honum rann út í gær :P heheh.. Svo auðvitað þar sem að ég er svo "snobbuð" sætti ég mig ekki við hvað sem er.. Ég læt ekki sjá mig á hverju sem er.. En þar sem ég er líka nísk vil ég ekki að hann eyði miklu svooo.. þetta kemur vonandi allt í ljós fljótlega :D hehe..

Annars þá vil ég þakka Jóhönnu og Ernu fyrir mjög skemmtilegan rúnt í gær.. vona að ég hafi ekki verið leiðinleg með leiðinlegar sögur.. :P haha.. annars þá hittum við líka Hjördísi og Tinnu (vinkonu Hjördísar og Jóhönnu).. skutluðum þeim í eitthvað útlendingapartý ;) hehe.. :D :D .. Hinsvegar vorum ég, Jóhnna og Erna ekki aaalveg í djamm-fílingnum í gærkveldi þó svo að ég væri með massífar rauðvínsslettur á bolnum mínum.. Jóhanna var nýkomin úr vinnunni og sturtu og Erna búin að vinna í 15 tíma eða eitthvað.. Ég var nú bara löt og pínu þreytt því ég var að hjálpa í veislu hjá nágrönnum mínum.

Já.. þessir nágrannar mínir eru alveg yndisleg.. Þau eru búin að vera saman í um 39 ár og voru að gifta sig í gær:D..og þau eru sextug bæði.. :D "Mamma mín og pabbi" í næsta húsi ;) hehe :D :D Ekki átti ég nú von á þessu.. þar sem ég var alltaf að spyrja Svövu, æskuvinkonu mína, af hverju mamma hennar og pabbi væru ekki gift, þegar við vorum litlar..  En já.. ég var s.s. að sörvera áfengi og annað í gær.. ásamt fleiri stelpum;).. Þetta var bara mjög gaman og sat ég eitthvað þarna fram eftir með rauðvínsslettur á bolnum mínum :P haha..

Annars þá er nú ekki hægt að kvarta yfir veðrinu þessa dagana.. það er búið að vera geeeeðveikt.. og vil ég endilega halda því áfram :D .. Ég er ekki að kvarta þetta er geggjað.. svona á þetta að vera.. :D .. ég veit að fólk er alveg sammála mér :P haha..

Þó að það sé bara sunnudagur.. er búið að plana næstu helgi.. ;) Fjölskyldan + gestir erum að fara upp á Hafravatn á Jet-Ski og eitthvað fleira.. Hlakka svooo tiiiil :D hehehe..

En ef einhverjar Fuerte-stelpur eru að lesa þetta endilega kíkið á hotmailið ykkar ef þið eruð ekki búnar að því ;).. bréf frá mér sem þið VERÐIÐ að skoða :D

Nóg af bulli af mér í bili :D

-
beggan

*•.° | Mánudagur

28. maí 2007 klukkan 22:05

 Ég er ennþá á lífi.. bara að láta ykkur vita. Þetta verður samt ekki neitt svakalega langt blogg þar sem ég er eiginlega bara að segja bless við Ísland í hálfan mánuð. Er að fara á morgun á Fuerteventura á Kanarí.. útskriftarferðin sko :D

úlallaaa..

Annars þá útskrifaðist ég frá Verzlunarskóla Íslands á laugardaginn. Svaka athöfn í Háskólabíói þar sem ég var ein af 233 nemendum að útskrifast :P Þetta tók líka sinn tíma, kannski líka vegna þess að athöfnin byrjaði örlítið of seint og ræðan hjá Sölva skólastjóra toppaði alveg leiðinlegheitin. Sorry Sölvi minn en þetta var bara leiðinleg ræða þarna í endan.. Það þarf ekki að segja mér neitt um Jónas Hallgrímsson, ég veit þetta allt saman, ég er búin að vera læra allt um hann í næstum tvö ár.. ég var heldur ekki sú eina sem var að deyja úr leiðindum.. fólk út í sal var farið að dotta.. :P

Svo skokkuðu flest allir út í Háskólann þar sem hópmyndin var tekin þar í tröppunum.. Það tók líka sinn tíma :P .. Svo brunuðum við heim, ég, pabbi mamma og Gulla.. þegar heim var komið var klukkan orðin tíu mín. yfir 5 og veislan átti að byrja um 5leytið og fólk mætt.. Alltaf gaman að mæta seint í eigin veislu..

Þetta var hreint ágætisveisla og fékk ég helling af fallegum hlutum.. skartgripi, bækur, kertastjaka, spegil, peningatré og fleira.. :D - Takk æðislega fyrir mig :D er alveg yfirmig ánægð :D - Set kannski myndir af því sem ég fékk á netið þegar ég kem heim ;)

Annars ætla ég að halda áfram að pakka og e-ð skemmtilegt..

Segi bara.. njótið sólarinnar hérna heima ef hún sést eitthvað ;)..

- beggan

*•.° | Þriðjudagur

15. maí 2007 klukkan 17:41
 Jæja.. loksins er ég búin í prófnunm. Ég hélt að gærdagurinn myndi aldrei renna upp.. Ég mætti fersk í bókfærslu eftir aðeins 3 tíma svefn.. ég var þó ótrúlega hress miðað við aðstæður.. Fór svo heim strax eftir prófið en var samt ekki alveg á þeim buxunum að fara að sofa.. það er eins og ég geti ekki sofið almennilega á daginn.. :S

Annars þá er þessi prófatörn búin.. og fegin er ég.. ég er alveg viss um að ef ég hefði þurft að fara í fleiri próf hefði heilinn minn ekki geta höndlað fleiri tölur, orð, setningar eða bókstafi.. Heilinn minn er alveg að verða "memory full" þessa stundina :S Ég þarf að fara deleta dóti sem ég er hætt að nota..

Þar sem að ég var alveg mánuð í prófum eða meira hef ég algjörlega vanrækt herbergið mitt.. enda sást það alveg langar leiðir. En ég tók mig til í morgun og hreinsaði til í herberginu mínu.. Núna er hægt að labba um í því án þess að stappa ofan á fötum eða hugsanlega einhverjum hælaskóm og stinga sig í lappirnar. Það voru einnig bækur og blöð út um allt.. En núna er komið "control" yfir þetta allt saman :D hehe.. Enda líður mér betur.. í fyrsta skipti í mánuð hef ég varið meira en 10 mínútum hérna inni frá tiltektinni.

Annars kann ég varla að umgangast fólk lengur.. ég er búin að vera svo lengi "úr umferð" að það er hræðilegt.. :P Vonandi kemur þetta á næstunni.. Annars hef ég verið með dúndrandi hausverk í tvo heila daga og er ég alveg viss um að það sé vegna þess að ég er ekki á fullu að læra :P.. svo þarf ég bara að "drugga" mig upp til þess að höndla daginn :S

En annars þá fer maður bara að vinna á morgun.. svaka gaman.. held að það verði eitthvað Pool-mót innan vinnunnar eftir vinnu á morgun ;).. sjáum þá til hvort ég sökki ekki enn meira í pool :D hahah :D :D - Hlakka samt pínu til.. Ef ég vinn ekki.. þá vona ég að það verði einhver skammarverðlaun fyrir suma.. eins og mig :D haha.. - Alltaf gaman samt að fara í pool :D

Hinsvegar varð ég tvítug um daginn.. Svaka sniðugt ;) Leiðinlegt ef þú gleymdir að óska mér til hamingju með daginn ;) hehe.. en betra er seint en aldrei ;) :D hahah..
Það var svo afmælismatur á föstudaginn þar sem öll pabba-fjölskylda mætti hress og borðaði.. :D Alltaf gaman að hitta familíuna ;) ..

Á laugardaginn kaus ég.. og horfði aðeins / smá á Júróvisíón.. pabbi bauð mér svo út að hjóla.. Í rauninni nennti ég ekki að hanga heima því að ég var búin að hanga heima.. samfleytt í einhverjar 4-5 vikur.. svo ég og pabbi hjóluðum niður í bæ, út að Gróttu og kíktum svo til Skjaldar og Kristínar.. Fórum alveg hátt í 100 km / klst. á köflum :D hahaha.. Við hjólum svo hratt ;).. (ef einhver er ekki búinn að fatta þetta þá vorum við á mótorhjólinu hans pabba).. Svo aftur í gær þá fórum við út að "hjóla".. Þetta er bara aðeins of gaman..

Skjöldur sagði svo við mig þegar við komum á laugardaginn að annaðhvort þyrfti ég að taka sjálf mótorhjólapróf eða finna mér einhvern kall sem á mótorhjól ;) hahaha.. -- Kannski bara gera þetta bæði :D

Annars hef ég voða lítið að segja frá.. það er fátt búið að gerast undanfarið :P Er einnig með það mikinn hausverk að ég get ekki hugsað um eitthvað til að röfla út af .. Vildi bara blogga til þess að sýna að ég væri ennþá á lífi og svona ;)

Svo ég segi þessu bara lokið í bili.
- beggan

*•.° | Fimmtudagur

03. maí 2007 klukkan 12:14
 Ojj.. ég á að vera að læra, en ég hef bara ENGA einbeitingu.. Er það vegna þess að ég á að vera læra undir próf? - kannski.. eða er það vegna þess að ég komst að einu sem ég varð pínu vonsvikin út af? - kannski.. eða er það vegna þess að ég veit að það er föstudagur á morgun og Helena ætlar að kíkja í heimsókn? - kannski..

Vegir Guðs eru órannsakanlegir.. ;) eða eitthvað svoleiðis.

Ég er hinsvegar að fara í 8 prófið mitt af 12 á morgun.  Þannig að þetta er allt að koma :D .. Þetta er reyndar orðið alveg ágætt bara.. hmm.. Fer þetta ekki alveg að verða búið.. !?

Annars á morgun þá er vika þangað til að ég verð tvítug ;) úúú.. svaka stuð ;).. Hinsvegar ætlar mamma, takið eftir því mamma, að halda upp á afmælið mitt. Ætlar að vera með einhvern smá mat hérna og bjóða fjölskyldunni aðallega.. Annars er ég ekkert að stressa mig út af þessu.. :P .. Það verður bara fínt að hitta familíuna ;).. eyða smá tíma með henni áður en ég byrja svo aftur að læra fyrir seinasta prófið mitt (sem er þá 14. maí)..

Hinsvegar reyndi ég það um seinustu helgi að kenna stráki að valhoppa.. Það er eiginlega BARA fyndið að sjá strák reyna valhoppa..:D heh.. það er eins og þetta sé ekki innbyggt í þá.. eins og það er innbyggt í okkur stelpurnar ;) - En eftir smá kennslustund þá kom þetta hjá honum.. já og Óttar minn.. farðu svo að æfa þig meira heima í að valhoppa ;) hehe.. :D :D
Strákar að valhoppa - one of a kind ;)

Hinsvegar veit ég ekki með ykkur.. en ég á svakalega erfitt að muna hvað er hægri og hvað er vinstri. Kannski er ég eitthvað skrýtin (kannski.. jé right).. Eða jú.. ég veit alveg hvort er hægri og hvort er vinstri, bara stundum þegar ég er undir pressu GET ég bara ekki munað hvort er hvað.. Það getur tekið smá tíma fyrir mig að muna - Heilsa Hægri -  já og svo skrifa ég líka með hægri. Hinsvegar er ég alveg svakaleg ef ég er að skutla einhverjum heim / eitthvert.. Ég keyri auðvitað svo listilega vel að kunnáttan fyrir hægri og vinstri er ekki nauðsynleg ;) .. T.d. um daginn þá var ég að skutla vinnufélaga hans pabba heim og hann sagði mér að beygja til hægri. Ég segi: "Ekkert mál.." - Færi stefnuljósarprikið niður og byrja að beyja til vinstri. Maðurinn liggur við öskrar og segir: "Nei hægri..!" - ég: "Djók.." og ekki lengi að hamra stefnuljósaprikinu upp.. og taka svaka flottan sveig og beygja til hægri.. Ég samt vil eiginlega kenna pabba um, því hann sagði að maðurinn ætti heima rétt hjá Ölmu frænku og þá beygir maður til vinstri.. Beygja til hægri er ekkert "rétt hjá".. Allavega.. Reyndar til að komast hjá öllum vandamálum eins og þessum.. Ef einhver segir við mig: "Beyja hérna næst til hægri.." - ég: "Hérna..?" og bendi af öllum lífs og sálar kröftum til "hægri" (meira svona gisk heldur en annað.. ég er nú fremur góð í svoleiðis).. Svo þegar einhver er að skutla mér eitthvað eða ég að vísa vegin eitthvert þá bendi ég í staðinn fyrir að segja "hægri / vinstri" .. Ég geri bara ráð fyrir því að það séu allir svona gáfaðir eins og ég:D - Það er miklu flottara að benda og vera svolítið líflegur farþegi, heldur en að sitja bara á rassinum og þykjast vera eitthvað kúl vegna þess að maður kann muninn á hægri og vinstri í flýti.. Nerds ;)

Hinsvegar hvað er málið með að það var 22°C á Akureyri um daginn.. Fokk Akureyri .. Hvenær ætlar þetta góða veður að koma til Reykjavíkur.. - Allavega það má láta sjá sig EFTIR prófin.. Ég vil ekkert hafa of gott veður hérna á meðan maður verður að sitja inni og læra.. allavega fær maður ekki samviskubit yfir því að nýta ekki þetta góða veður þegar það lætur svo loksins sjá sig, á bandvittlausum tíma!! - Annars væri svo sem fínt að fá einhverja sólardaga og gottveðurdaga svona einu sinni og einu sinni í sumar.. það þýðir samt ekkert að koma með þessa daga bara á virkum dögum.. því að ég er auðvitað vinnandi manneskja og ég get ekkert stokkið úr vinnunni þegar mér hentar.. Ég vil að þessir sólardagar komi bara um helgar ;) eða einna helst :D.. þá getur maður notið þeirra almennilega :D

Hinsvegar get ég ekki beðið eftir því að komast í smá sumarfrí / vinnu:P blöö.. Vona svo að við familían förum til Akureyrar yfir 17. júní.. :D íí.. Bíladaga.. íí :D Aðeins of töff ;) hehe.. Pabbi þarf að fara plögga einhverjum gististað helst í gær ;).. En jæja hvað um það.. svo verður auðvitað Aðalvík í sumar ;) held það verði ekki fyrr en í ágúst (vonandi).. en það er bara allt í lagi.. Ég vil aðeins skemmtilegt fólk með í þessa ferð svo áhugasamir bjóði sig fram ;)

Úff.. ég verð að fara fá mér hádegismat og svo bara læra, læra, læra ;)

Já.. má auðvitað ekki gleyma.. ég er orðin fíkill.. Stofnaði mína fyrstu myspace síðu um daginn.. Á alveg versta tíma, prófatímanum, ekkert sniðugt.. ;) - og ég sem ætlaði aldrei að fá mér svona;) hehe..
Myspace síðan mín:

www.myspace.com/beggan11

Þangað til næst ;)
- beggan

*•.° | Mánudagur

23. apríl 2007 klukkan 14:51
 Ekki skamma mig.. I know it all..  já og Gleðilegt sumar ;)

Jæja.. núna í morgun var ég að klára 3 prófið mitt af 12. Nei ég skrifaði tólf ekki vittlaust inn ég er að fara í 12 próf. Hvort sem þú trúir því eða ekki. Fjórða prófið mitt er svo á morgun.. munnleg enska.. en ég var s.s. í enskuprófi í morgun. Prófið var alveg sanngjarnt.. en var heldur öðruvísi en búið var að "lofa okkur".. en það er svo sem allt í lagi með það. Hinsvegar fengum við 3 tíma í prófið.. en höfum yfirleitt alltaf bara fengið 2. En þar sem við, krakkarnir í 6. bekk, röfluðum svo mikið yfir því hvað prófið væri langt og mikið en próftíminn stuttur.. Þannig að þetta var í fyrsta skipti sem maður þurfti ekki að drífa sig að skrifa. Ég þurfti ekki að stija sveitt og skrifa allan tímann.. ég gat í fyrsta skipti hugsað í enskuprófi og pælt aðeins í spurningunum. Þannig að þetta var fremur sanngjarnt.

Annars þá er mánudagur í dag.. og leiðinlegasti dagur vikunnar er á morgun.. hehe :D Helgin var fremur fín miðað við það að ég þurfti að læra undir próf.

Föstudagurinn : einkenndist af prófi um morguninn og svo smá hátíðarhöldum um hádegisbilið í skólanum. Þar sem galakvöldið var um kvöldið og við fengum Spégrímu (árbók 6. bekkinga).. Skil samt ekki alveg út á hvað þessi hátíðarhöld gengu, þar sem aðalatriðið með þessu var að vera með "skemmtiatriði".. eða krakkar úr árgangnum að syngja og spila.. jú og svo hva.. ein þakkarræða sem tók pínu langan tíma. Eftir þetta allt saman fór ég bara heim og skoðaði Spégrímu í rólegheitum, lagði mig svo aðeins fyrir kvöldið. Því um hálf sjöleytið skutlaði Óskar bró mér í Kiwanishúsið þar sem var borðað og ræðuhöld og fleira skemmtilegt :D Þetta var allt frekar flott hjá nefndinni.. en get samt sett aðeins út á salinn, þar sem hann var aaaðeins of lítill fyrir þennan stóra hóp.. og jé minn.. var ekki hægt að hafa borðin aaaðeins minni.. 30-40 cm breið borð fyrir tvo að borða á.. Maður gat léttilega fengið sér af disknum hjá næsta manni án þess að sá hinn sami myndi taka eftir því.. En eftir matinn og smá ræðuhöld frá hverjum bekk fyrir sig var svo farið inn í lítinn sal og dansað.. Kennararnir skemmtu sér konunglega við að dansa við nemendurna .. en sumir voru ekkert á því að dansa við kennara heldur aðeins samnemendur.. Tvennt úr bekknum mínum tóku svakalegan dirty dancing á miðju dansgólfinu.. sem var svakalegt.. Hvernig skyldi kvöldið hafa endað hjá þessum tveimur aðilum.. aldrei að vita ;) Óskí bró kom svo og sótti um um eitt leytið og fór ég fljótlega heim eftir það .. sofnaði samt ekki fyrr en um svona hálf þrjú.. þrjú.. vaknaði svo aftur um hálf fimm þar sem Óttar hringdi í mig.. maaan ekki aaalveg hvað við vorum að ræða þá.. því að við erum búin að tala svo mikið saman undanfarið :P haha.. alveg orðin rugluð í þessu öllu saman.. en jæja

Laugardagurinn : reyndi að vakna snemma til að geta farið að lesa ensku.. en það gekk eitthvað brösulega.. Gat þó fengið sjálfa mig til að fara á fætur og fór að lesa.. líka þessa svakalega svæfandi bók.. :D Mæli hreinlega með bókinni Aspects of Britain and the US ef þú þjáist af svefnleysi.. þessi bók leysir öll þau vandamál.. :D hehe.. en jæja.. ekki stóð þessi lestur yfir lengi þar sem að ég þurfti að fara redda afmælisgjöf.. því að elsku Stína mín.. bauð mér, og fleirum, í afmælið sitt sem var um kvöldið.. Þetta gekk allt saman framar vonum og skundaðist ég svo heim að reyna lesa.. Lítið var gert í því.. en Magga syss litaði aðeins í rótina hjá mér, þar sem ég var komin með svakalega rót.. og er orðin öllu heldur skárri núna :D Jeijj.. Fór svo hægt og bítandi að hafa mig til fyrir kvöldið og kom svo Anna að sækja mig um tíu leytið.. Hún hafði víst verið feeeemur hress á sinni Dimission að hún mundi varla eftir öllu saman ;) haha.. *Ópal* .. við fórum til Írisar að sækja hana.. og hittum aðeins Kolbrúnu Thelmu (dóttur Írisar).. svaakaa sæt lítil stelpa.. "enda orðin 8. mánaða" *húmor* ... Held samt hún viti ekki alveg að hún sé lítið barn, því hún var stöðugt með tunguna úti og másandi og blásandi eins og hundur.. Henni þótti þetta svakalega sniðugt :D haha.. En jæja fórum svo af stað niður á Hverfisbarinn (þar sem afmælið var).. og hitti þar Björgheiði sem var líka í afmæli.. en bara í hinu afmælinu..  Líka alltaf gaman að hitta fólkið sem maður var með Seljaskóla;) hehe.. við skunduðum svo heim um 1 leytið..

Sunnudagurinn : vaknaði um 9 leytið því ég var staðráðin í því að halda áfram að lesa. Ég kláraði að lesa það sem ég þurfti að lesa í "svæfingabókinni" ... þó er það í einhverri móðu þar sem ég man lítið eftir þessu :P.. en sofnaði svo aftur.. svaknaði og hélt áfram að lesa í annarri bók :D Dagurinn gekk svo út á það að lesa og læra fullt af orðum á ensku. Ætlaði svo að nýta gærkvöldið í að lesa í sjónvarpsherberginu.. til að geta setið aðeins upprétt og lesið.. en sama hvað ég reyndi að halda mér vakandi ég gat það bara ekki og endaði með því að sofa í sjónvarpsherberginu.. ekki svo slæmt.. nema bara ég mæli ekki með því að sofa mikið í leðursófa.. Vaknaði nokkrum sinnum yfir nóttina því ég var FÖST við sófann.. Svitnaði líka eins og mér væri borgað fyrir það.... eða kannski var það bara stress.. ég veit ekki :P

Hinsvegar ætla ég að reyna nýta daginn vel í það að lesa meira á ensku.. Vona að ég verði dugleg. Sem betur fer er ekki Grey's í kvöld.. get ég allavega verið bara róleg.. er ekki að missa af neinu sérstöku :P Til hvers að eyða tíma í að horfa endursýnda þætti.

En já.. um daginn .. réttara sagt 17. apríl var seinasti skóladagurinn minn í menntaskóla.. Bekkurinn var búinn frekar snemma í skólanum og ákváðum við því að splæsa saman í súkkulaðiköku, mjólk o.fl. Svo var haldið kosning um hitt og þetta og niðurstöðurnar eru hérna:

Besti nemandinn : Anton
Mestu framfarirnar : Brynja
Kennarasleikjan : Kristín
Jókerinn : Arnór
Bjartasta vonin : Brynjar og Hákon
Gáfnaljósið : Baldur
Sportistinn : Matti
Artí : Rúna
Mestu breytingarnar : Vigdís
Hözzlerinn : Elín Anna
Hönkinn : Arnór
Gellan : Halldóra
Rassinn : Matti
Fatafríkið : Brynja
Dekurrófan : Brynja
Brosið : Helga
Augun : Hákon og Elín
Lélegasti tónlistarsmekkurinn : Baldur
Besta partýið : Nemó hjá Björgheiði

Alltaf gaman að hafa eitthvað svona skemmtilegt seinasta daginn ;)

Hinsvegar get ég ekki beðið eftir því að sumarið komi. Það er nú reyndar alveg að koma.. En mig langar að sjá meira af sumrinu. Ég er orðin frekar þreytt á því að horfa á gulu grasið í kringum húsið hjá mér.. ég get ekki beðið eftir því að græna grasið láti sjá sig. Ég væri ekkert á móti því að taka mér kannski einhverja nokkra daga í frí í vinnunni í sumar og vera vinna heima í garðinum. Gerði þetta í fyrra.. Tók mér frí til að vera að dandalast með pabba aðeins heima. Máluðum nokkrar spýtur og svona.. Vonandi verða þær "smíðaðar" í sumar.. kominn tími..

Jú, svo vonandi útskrifast ég 26. maí.. Held bara smá "veislu" hérna heima.. bjó til "gestalista" um daginn.. býð fjölskyldu og vinum.. úlallaa.. ert þú á þessum lista!? hmm.. ;) Annars.. get ekki beðið

Úff.. áhugaverð færsla hérna á ferð.. tala ekki um neitt annað en sjálfa mig.. :P En það er líka hollt annað slagið.

Allavega ætlaði að óska öllum þeim sem eru að fara í próf / eru að fara byrja í prófum góðs gengis og gerið ykkur besta ;) .. meira er ekki hægt að krefjast af ykkur :D

Þangað til næst
"Mánudagur.. Elskaði hann eða reyndu að gleyma honum.."
- beggan

*•.° | Þriðjudagur

10. apríl 2007 klukkan 19:15
 Gleðilega páska og allt það saman.. Vona að fríið hjá ykkur hafi verið jafn afslappandi og tjilluð hjá mér.. :P Langaði samt að byrja á að óska yndislegu systkinum mínum til hamingju með afmælið.. Litlu sætu systkini mín eiga 17 ára afmæli í dag.. og haldið ykkur heima.. þau eru komin með bílpróf!! -- vil bara vara ykkur við!! ;)

Ég eyddi hinsvegar páksafríinu mínu á Ísafirði.. Kíkti aðeins á Rokkhátíðina "Aldrei fór ég suður" eins og ég var búin að nefna hérna örugglega nokkrum sinnum.. Þetta var alveg svakalega skemmtilegt ;) og mæli ég klárlega með þessu.. Spurning um að kíkja þarna á næsta ári aftur.. Hinsvegar ætlaði ég að vera ógeðslega dugleg að læra yfir páskana og setti ég allar bækurnar mínar í kassa og tók með mér vestur.. ég rétt opnaði kassann og lærði eitthvað aðeins.. Er komin með svakalegt samviskubit yfir því að hafa ekki lært eins mikið og ég ætlaði að gera.. Vildi að ég gæti spólað til bakka og læra meira :P.. en ég get það ekki.. því miður..

Ég var of upptekin við að sofa og hafa það kósí og borða NAMMI.. Um leið og ég fór úr stressinu í Reykjavík slokknaði á öllu saman hjá mér.. ég gat eiginlega ekki bara lært.. vildi helst bara sofa og borða... jé minn..! Ég t.d. varð ALDREI svöng þarna.. því ég gerði ekkert annað en að borða :P -- Fyrir utan þessa sjálfsvorkunn þá fórum ég og mamma í bingó á hótelinu ;) hehe.. svaka gaman :D.. Mamma (ásamt fleiri öðrum) fengu að segja "BINGÓ".. og í verðlaun fékk mamma páskaegg :P.. svaka gaman.. :D Var samt pínu fúl yfir því að hafa ekki unnið.. en gengur bara betur næst :D hehehe.. elska bingó .. tíhí :D

Koma myndir af letinni á netið vooonandi fljótlega ;) .. vona það allavega :D

Annars ætlaði ég bara að "pósta" inn smá bloggi til þess að sýna að ég væri ennþá á lífi ;) heeehee..

Verður vonandi aðeins lengra blogg næst;) íhí..

-
beggan
(ég veit þetta er glatað:P )

*•.° | Miðvikudagur

28. mars 2007 klukkan 22:07
 Það var rétt.. Þetta er einmitt rétta veðrið sem ég pantaði.. Núna eru veðurguðirnir að hlusta á mig.. Reyndar var aðeins smá hvítt á jörðinni í morgun.. og ég þurfti að skafa frost-drasl af bílnum (ekki mínum reyndar) með hræðilega leiðinlegri og lélegri sköfu.. sem ískraði í.. ekki uppáhaldið mitt. Skoppaði í kringum bílinn eins of fáviti að reyna skafa rúðurnar svo ég sæi eitthvað aðeins út.. Þetta tókst á endanum.. og bölvaði ég veðrinu.. En seinnipartinn var sólin farni að skína og mér leið eins og sumarið væri á næsta leyti.. (reyndar er það alveg að koma.. en það er samt svolítið í það að maður geti setið úti í þunnri peysu / jafnvel bol og notið veðursins.

Við, krakkarnir í 6. bekk, gátum notið þess að sitja úti á tröppum skólans og beðið eftir klósettpappíra-eldhúsrúllu-og-þvottaefna-sendingunni í góða veðrinu. Náðum að sóla okkur aðeins í framan.. ekki veitir nú af. Ótrúlegt hvað maður verður eitthvað jákvæður og ánægður þegar veðrðið er gott og sólin farin að skína.. og hita aðeins í kringum sig. Eins og ég hef alltaf sagt.. ég elska sumarið :D

Hinsvegar er ég að verða geðveik á þessum blessaða skóla sem ég stunda nám við.. Endalaust af verkefnum og prófum svona alveg í bláendann.. Það er verið að mjólka mann alveg út í eitt. Ég var t.d. að læra undir próf í gær og ég var svo komin með upp yfir haus að lesa og læra að ég var næstum því búin að gubba.. Ekki bókstaflega.. heldur í alvörunni.. Svo er ég að fara í próf á morgun í The Importance of Being Earnest.. Reyndar er ég búin að lesa hana, en mér finnst samt eins og ég kunni ekkert í henni.. Sjáum bara til á morgun hvernig mér gengur.. En neeeii þetta er ekki búið.. því á föstudaginn þarf ég að flytja "leikrit" í spænsku með Jóhönnu.. Þurfum að muna þetta allt utan af og þurfum að vera helst í einhverjar 10 mínútur að þessu.. Hlakka ekki neitt rosaleag mikið til, ekki alveg uppáhaldið mitt.. en jæja þetta er samt að verða búið.. Svo byrjar bara páskafríið á föstudaginn.. :D Jeijj.. loksins smá frí frá skólanum.. Get ég vaknað aðeins seinna en "venjulega"..

Hvað er annars málið með það að ráða útlendinga til vinnu hérna á landi sem kunna ekki íslensku.. Þá er ég ekki að tala um að það þurfi að kunna reiprennandi íslensku.. heldur bara rétt til að bjarga sér og SKILJA aðra Íslendinga. T.d. var ég að lesa í Morgunblaðinu áðan um strætóbílstjórana sem geta ekki svarað spurningum farþeganna og vita ekki einu sinni hvað göturnar heita sem þeir keyra um... því þeir eru jú útlendingar.. sem kunna EKKERT í íslensku. Á mínum yngri árum man ég eftir því að það var ungverskur strætóbílstjóri að keyra einn af strætóunum sem ég tók.. Hann skildi ekkert gömlu farþegana sem voru að reyna fá einhver svör.. suma daga talaði hann endalaust mikið í talstöðina við einhvern annan ungverskan bílstjóra.. aðra daga fór kærastan hans (held ég) með honum á rúntinn og sat hún þá í farþegasætinu næst honum og töluðu þau endalaust mikið saman.. þetta er auðvitað ekkert fyndið.. Svo núna í dag fórum ég ob Björgheiður í Bónus í Kringlunni.. Það voru ekkert nema útlendingar (Rússar) að vinna á kössunum.. ég veit að það er mikið af gömlu fólki sem verslar í þessari verslun og ef að kassadömurnar geti varla gert sig skiljanlega á íslensku (og varla ensku heldur) skil ég ekki hvernig þetta dæmi á að ganga upp.

Eins og í dag þegar við fórum í Bónus.. þá var maður á undan okkur í röðinni sem var að versla einhvern varning (auðvitað).. Rússneska stelpan þurfi að hafa sig alla fram við að bera fram verðið á því sem hann keypti.. hún jú náði að staula einhverju á "íslensku" út úr sér.. svo þurfti maðurinn að spyrja um afslátt á einhverju sem hann keypti.. og stelpan stóð bara þarna og starði á hann.. Þessi maður var greinilega ekki sleipur í enskunni og var nú bara heppinn að það var annar maður með honum sem gat spurt um afslátt.. Hún skildi samt ekkert hvað hann var að segja og endurtók hvað þetta kostaði.. Svo sagði hun þetta á ensku og enskan hja henni var nú ekkert upp á marga fiska.. Þegar kom að okkur þá gekk þetta nú frekar snuðrulaust fyrir sig.. en á meðan við vorum að bíða þá var önnur rússnesk kona að afgreiða á næsta kassa.. Hún var að afgreiða gamla konu sem þurfti að fá nótu.. Þessi gamla kona var nú bara heppin að kunna eitthvað aðeins í ensku og gat sagt kennitöluna (sem átti að fara á nótuna) á ensku.. Þetta var mjög skilmerkilega sagt hjá henni og skildi ég gömlu konuna mjög vel.. þrátt fyrir það hversu hægt gamla konan talaði átti rússneska afgreiðslukonan erfitt með að stimpla inn tölurnar.. Ég heyrði hana ekki segja neitt annað en: "Wait, wait..." og taka smá flippkast.

Hvernig í ósköpunum getur þetta verið ásættanlegt? Ég er alveg hlynt því að útlendingar komi hingað til lands til að vinna.. en mér finnst nú samt alveg skilyrði fyrir því að þau geti gert sig skiljanleg á íslensku og skilji hvað aðrir eru að segja.. Ég er ekki að fara fram á að þau tali reiprennandi íslensku heldur bara að gera sig skiljanleg.. að maður skilji hvað það er að segja (sérstaklega gamla fólkið).. að tala bjagað en ágæta íslensku er alveg í lagi.. Þetta fólk er að vinna þjónustustarf á ÍSLANDI!.. að skilja hvorki upp né niður og geta varla talað er auðvitað út í hött.. hver sér eiginlega um þetta?

Ég er orðin pínu þreytt á þessu..

Nenni ekki að röfla meira um þetta.. því að ég veit að ég get lítið í þessu gert..

Hinsvegar var auðvitað Vörumessan í Smáralindinni á föstudaginn og laugardaginn.. Þetta var skemmtilegra en ég hélt að þetta yrði.. og voru fyrirtækin alveg æðisleg.. Krakkarnir í fyrirtækinu Allt í Einu unnu flottasta básinn.. og áttu þau það svo sannarlega skilið.. Voru einnig mjög svo skemmtileg og lífleg og auðvitað svaka sniðug hugmynd sem þau eru með.. ;) Congrats.. :D.. Óttar droppaði aðeins við á básnum okkar og smelli einni mynd af okkur (reyndar var Rúna farin) .. en Jóhanna, Björgheiður og ég verðum að duga í bili.. á fleiri myndir.. en á eftir að setja þær bara inn í tölvuna:P



Annars gekk bara vel að selja könnur.. Seldum fleiri á laugardeginum en föstudeginum.. Uss ég ætla nú ekki að taka heiður af neinum.. en Vigdís, Aðalheiður, Anton og Kristín stóðu sig svaka vel á laugardeginum að selja.. hörku sölumenn ;) hehe..

Já.. svo tók Óttar mynd af mér og ég bað hann um að "photoshoppa" á mér augun og láta mig vera með brún augu.. því að ég þrái það mjög heitt að vera með brún augu.. Hérna er mynd af mér með eitt brúnt auga.. Væri nú gaman að heyra hvort fólki finnst ég ætti frekar að vera með brún augu.. eða bara mín eigin :P



Annars er búið að vera kosningavika í skólanum Kox07.. og eru frambjóðendur búnir að vera með bása á marmaranum.. gefins hitt og þetta.. og er ég bara búin að borða nammi og drekka gos núna í þrjá daga.. ég er svakaleg.. :P .. Seinasti dagurinn var svo í dag og verður hægt að kjósa á morgun og hinn.. Það var allt brjálað í dag því að í dag voru frambjóðendur með gefins mat, KFC, pizzur, kökur o.fl.. Það var líka stappað á Marmaranum .. maður fékk svona netta innilokunarkennd.. :P Jájá.. svo er fólk að koma úr öðrum skólum að fá sér frítt að borða.. Ég heyrði víðsvegar um skólann í dag: ".. ég sleppti því meira að segja að taka með mér nesti í dag.." - Held að þetta sé komið svolítið út í öfgar.. Kíkið bara á fréttirnar á Stöð 2 síðan í gær :P

Hvað um það..

Eins og þið kannski sjáið er ég búin að breyta útlitinu á síðunni "aðeins" .. vona að þið séuð að fíla það jafn mikið og ég;).. annar haus kemur vonandi seinna ..

- beggan

*•.° | Þriðjudagur

20. mars 2007 klukkan 19:56

 Aftur er maður byrjaður að röfla.. Hinsvegar hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa. Allt of mikið að gera í skólanum, eins og áður eru kennararnir alveg á flippinu. Ég veit samt alveg að þetta er alveg að verða búið.. Buið og ekki búið.. það eru allavega að koma páskafrí hjá mér .. og það kalla ég "búið"..

Ég er hinsvegar komin með ógeð á að læra, ég er varla að nenna meiru.. Þetta er það eina sem ég tala um núna, hvað það sé mikið að læra heima og svona.. og hvað það sé mikið að gera í skólanum. Fólk heldur örugglega að ég geri ekkert annað en að læra. En það er ekki satt. Það er bara svo mikil pressa á manni, það er svona spenna í kringum kennarana.. sem gerir mann stressaðan. Þessi spenna gerir mann þreyttan og alveg í því að nenna EKKI að læra heima.. Svakalegt.

Hinsvegar fór ég í sögupróf um daginn, fékk svo einkunnina.. Hef aldrei fengið eins hátt í sögu og ég gerði um daginn. Var ekkert smá stolt af sjálfri mér. Mér hefur alltaf gegnið frekar illa í sögu. Kannski gekk mér vel núna því að tímabilið sem við erum að læra um er að nálgast okkar tíma. Þá fer maður að tengja ýmsa hluti. Þetta er ekki eins og hérna áður fyrr þegar maður var að læra um það sem gerðist á árunum 1300-1600.. hverjum er ekki drullu sama..!! bara sorry..!!

Ég veit að við eigum að læra sögu svo að við gerum ekki sömu mistökin aftur og aftur.. en það er samt alveg nóg að læra bara frá svona ca. 1800 til dagsins í dag. Það er aðeins of mikið að þurfa að leggja á minnið allt það sem gerðist í Frakklandi, öll stjórnin - ógnarstjórn og eitthvað drasl frá árunum 1300 - (til ég hef ekki hugmynd).. Mér finnst þetta bara leiðinlegt og til hvers að þurfa læra þetta.. Er nú alveg nóg að læra kannski um Danmörk og Ísland því jú.. það er eiginlega það eina sem skiptir máli.. eða varla ..

Nóg um þetta.. ég verð bara reið á að hugsa svona um þetta..!!

Hinsvegar er svo allt í gangi í fyrirtækinu mínu, Termó. Það er vörumessa (eins og ég var, held ég, búin að nefna hérna) á föstudaginn og laugardaginn. Vorum að fá að vita í GÆR hvernig básinn okkar lítur eiginlega út.. en samt er það ekki komið á hreint. Við vitum svona næstum því hvernig skilrúmið verður og vitum að við fáum borð til að hafa fyrir framan okkur.. en við vitum ekkert meira!.. frekar óþægilegt.. Þar sem þetta byrjar á föstudaginn er frekar óþægilegt að vita lítið um þetta.. varla hægt að negla niður neitt. Sem betur fer getur pabbi hennar Rúnu reddað plakötum fyrir okkur til að hafa í bakrunninum. Svo þetta verði ekki ógeðslega eintómt og ljótt.. Ég er svo búin að bjóða mig fram til að lána lampann minn.. vona að komi ekkert fyrir hann :D hehehe.. elska þennan lampa.. ætlum kannski að hafa svo Slide Show til að kynna okkur og fyrirtækið.. þetta kemur allt í ljós.. Aldrei að vita nema maður smelli nokkrum myndum af þessu öllu saman þegar þetta við erum búin að stilla þessu upp ;)..

Annars erum við að selja svona hitakönnur eins og --> þessa <-- .. hún verður ómerkt.. og kostar hún 1.000 kr. stk. Kostagripur.. heldur mjög vel heitu (eða köldu) og lekur ekki. Hægt er að loka gatinu (sem maður drekkur úr).. Þeir sem hafa áhuga á að koma og skoða og jafnvel kaupa eitt stykki.. geta droppað við í Smáralindinni á föstudaginn (23. mars) milli kl. 15-19 eða á laugardeginum (24. mars) milli kl. 11-16.. Leitið að Termó og þér munuð finna ;)  (alltaf gott að auglýsa smá) Ég er orðin bara frekar spennt yfir þessu öllu saman. Vona að þetta verði bara skemmtilegt.. :D

En eru þið að grínast í veðrinu. Ég pantaði ekki þennan snjó/slabb/rigning/rok/frost drasl sem búið er að vera að gera mig geðveika síðustu daga.. Þetta er EKKERT grín .. ég er allavega ekki hlægjandi..! Ef það er eitthvað sem ég HATA alveg innilega þá er það rigning + rok.. kannski vegna þess að þá rignir til hliðar og jafnvel upp.. ekki niður eins og í flestum öðrum löndum.. Hinsvegar finnst mér ógeðslega kósí t.d. að liggja inn í tjaldi/fellihýsi og kúra og hlusta á rigninguna "lemja" tjaldið að utan.. Veit ekkert betra.. Ohh núna sakna ég sumarsins.. vil fá sól og hita og geta farið í útilegur .. eða bara setið úti á palli og borðað góðan mat með familíunni.. :D

Talandi um sumarið.. Sumarið hjá mér byrjar á útskriftinni minni (ef Guð leyfir).. en svo er það útskriftarferðin til Fuerteventura á Kanarí með öllu Verzló-liðinu.. Jé minn.. þetta verður örugglega geggjað. Fer út 29. maí (eða 30. maí) og kem heim 12. júní (eða 13. júní).. Síðan tekur bara við vinna og vinna.. Kannski að maður kíki í einhverjar útilegur og svona.. ætli maður fylgi ekki gamla settinu eitthvað ;) aldrei að vita :D hehe.. svo langar mig ótrúlega mikið að kíkja á Hafravatn allavega eina góða helgi.. Hvort sem það verður með familíunni, vinum eða einhverjum öðrum.. Markmið mitt er að eyða a.m.k einni helgi þarna í sumar (fleiri ef Guð leyfir).. Svo að sjálfsögðu er það Aðalvík.. Veit ekki alveg hvenær það verður.. en ég ÆTLA.. Ísafjörður verður að venju heimsóttur (ef ég ætla í Aðalvík þ.e.a.s.) og húsið okkar verður heimsótt :D.. svo er aldrei að vita nema að eitthvað óvænt og skemmtilegt gerist í sumar.. Elska sumarið ... þó svo að það hafi SÖKKAÐ í fyrra.. leiðinlegt veður og bara vaaá.. hvað ég var leiðinleg í fyrrasumar.. ojj.. Kenni veðrinu um..!

Ef ég hætti ekki .. fer ég að grenja yfir því að sumarið er ekki komið... svo ég hætti í bili..

Elska þig sumar
- beggan

*•.° | Mánudagur

12. mars 2007 klukkan 18:48
 Úúú.. ég bara dugleg að blogga.. eða eitthvað svoleiðis :D Eins og alltaf á mánudögum þá var sunnudagur í gær.. og þar af leiðandi helgin nýafstaðin.. :D svaka fín og skemmtileg .. :D haha :D Sit svo bara hérna við matarboðið að blogga.. bíða eftir því að grjónagrauturinn verði tilbúinn.. sem mamma á eftir að byrja elda ;) hah :D :D

En já eins og sagði þá var föstudagur fyrir þremur-fjórum dögum síðan.. (get ekki talið).. kíkti bara aðeins í skólann fór svo að vinna eftir skóla :D.. Kíkti svo á Langbest í Keflavík með honum Bigga ;) .. ég var samt frekar léleg, búin að hæla þessum pizzum í gríð og erg og svo borða ég varla eina pizza-sneið :S Hversu ömurleg.. :P Sumir borðuðu 4 sneiðar, segir mér að þetta hafi ekki verið svo slæmt ;) haha :D Vorum alveg til lokunnar, held ég og á heimleiðinni snjóaði!! stoooórum flyksum.. hef varla séð það stærra.. Tókum svo bara rúnt í bænum, ekkert alveg besta veðrið.. Sýndi honum Barbie-húsið í Grafarvogi.. :D HAHA.. :D þarf að sýna öllum sem ég tek á rúntinn :D haha :D.. en annars takk fyrir skemmtilegt kvöld, vona að ég hafi ekki verið of leiðinleg :P

Laugardagurinn var svo tekin rólegur framan af.. þurfti þó að sækja Gullu frænku upp á flugvöll.. hún var að koma frá Íran.. Keyrðum svo heim í pínu vondu veðri... komum svo inn í bæinn og þá var brjálað veður.. skil ekki.. það var ógeðslegt veður inn í bænum en ekki á leiðinni til Reykjavíkur.. alveg ótrúlegt.. tókum því svo bara rólega heima hjá henni, var að skoða það sem hún hafði keypt sér og svona.. svaka flott teppi o.fl... ég var "voooó + *stór augu*" í einhvern klukkutíma ;) haha.. ótrúleg :D seinni parturinn af deginum var svo bara tekinn rólega þar sem ekki var neitt sérstaklega gott veður úti... :P tók því bara rólega.. alltaf gott :D haha..

Sunnudagurinn.. læra undir sögu-próf... (ekki uppáhaldið mitt)

Hinsvegar langar mig að benda á þessa skemmtilegu --> frétt <--.. Frekar fyndið að fólk getur gert svona.. Kannski líka gaman að segja frá því að dóttir Röggu ("boss"inn minn) var farþegi í bílnum..  ótrúlegt..!! bara skil þetta ekki.. hinsvegar sagði dóttir hennar við einhvern útlending, sem var að furða sig á þessu: "How do you like Icelandic art?"
Snilld :D haha

Annars er bara skólinn á fullu, kennararnir eru að verða ruglaðir. Eru allt í einu að fatta núna að það eru bara tvær vikur að páskum og eru allt í einu að fatta það að þeir eiga eftir að fara yfir helling af efni..!! Próf í hverri viku fram að páskum.. alveg ég elska ykkur kennarar!!!! :D  eruð uppáhaldið mitt.. eruð öll á speed-dial hjá mér.. újé ;)

Jújú.. svo er bara massa dagskrá um helgina.. Laugardagurinn er alveg uppbókaður.. vinna, afmæli og svo hugsanlega bekkjarpartý :D ííí..  og svo próflestur á sunnudaginn.. :P haha.. föstudagurinn er laus hjá mér :D um að gera panta tímanlega.. *hóst* haha.. ;)..

En jájá.. þið segið nokkuð.. haaa.. já.. fólk getur nú ekki verið að kvarta yfir því að ég bloggi sjaldan.. haha :D - eat this :D

- beggan

B E G G A N

  • Nafn: Beggan
  • Hjúskaparstaða: á lausu..
  • Um mig: 20 ára
    msn : call_me4times@hotmail.com
    myspace : /beggan11
  • Annað: NÝTT - NÝTT
    - gullkorn | Nokkur ný gullkorn
    - Hjördís 20 ára | Myndir úr afmælinu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...